Garðbæingar ánægðastir allra landsmanna með þjónustu sveitarfélagsins

Samkvæmt nýrri þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunnar sem kynnt var í dag kemur m.a. fram að mesta ánægjan er í Garðabæ af öllu landinu með þjónustu sveitarfélagsins, en alls eru 80,4% Garðbæinga ánægðir með þjónustuna sem þeir fá í bænum, en þeir voru spurðir í könnuninni hversu ánægðir eða óánægðir þeir eru með þjónustu sveitarfélagsins.

Þjóðmálakönnunin náði til alls landsins, en málefni leik- og grunnskólanna eru efst á blaði hjá nágrannasveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu. Skipulagsmálin vega þyngst í hugum Reykvíkinga á meðan atvinnumálin eru talin mikilvægust á landsbyggðinni.

HÁSKÓLI ÍSLANDS

Alls eru 89,1% Garðbæinga annað hvort ánægður eða hvorki ánægður né óánægður með þjónustuna sem Garðabær veitir íbúum, en aðeins 10,9% er óánægður.

Akureyringar er næst ánægðastir með þjónustu sveitarfélagsins, en 75,5% er ánægður og þá eru íbúar í Kópavogi í þriðja sæti, en 71.6% Kópavogsbúa er ánægður með þjónustu sveitarfélagsins.

Verst kom Reykjavík út í könunninni en aðeins 42,4% bæjarbúa er ánægður með þjónustuna sem sveitarfélagið veitir þeim.

Rannsókn Félagsvísindastofnunnar fór fram í mars og tóku alls 808 manns þátt í henni á öllu landinu.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar