Garðabær vill efla sjóvarnir á Álftanesi og við Garðahverfi

Umfang tjóns og ágangs sjávar hefur vakið áhyggjur bæjaryfirvalda, sem telja nauðsynlegt að grípa til aðgerða og flýta framkvæmdum

Garðabær vill efla sjóvarnir á Álftanesi og við Garðahverfi á Garðaholti eftir ofsveðrið um þar síðustu helgi, þar sem sjór gekk langt inn á land og stórgrýti færðist til með miklum krafti. Umfang tjóns og ágangs sjávar hefur vakið áhyggjur bæjaryfirvalda, sem telja nauðsynlegt að grípa til aðgerða og flýta framkvæmdum. 
Á síðasta fundi bæjarráðs fór sviðsstjóri umhverfissviðs yfir stöðuna og kynnti áætlanir um styrkingu sjóvarna á svæðinu. Almari Guðmundssyni bæjarstjóra hefur verið falið að fylgja málinu eftir við ráðherra, Vegagerðina og Náttúruhamfaratryggingar Íslands til að tryggja tafarlausar úrbætur.  

Varð eitthvað tjón á Álftanesi og Garðahverfi vegna ágangs sjávar í nýliðnu ofsaveðri?  ,,Já, ofsaveðrið um þar síðustu helgi olli miklum sjávarágangi þar sem sjór gekk langt upp á land og færði stórgrýti til með miklum krafti. Sérstaklega miklar skemmdir urðu á sjóvörnum við Blikastíg, Norðurnes, Kasthúsatjörn, Sjávargötu, Helguvík og Hliðsnesveg. Auk þess er mikið landbrot við Dysjar, Pálshús og neðan kirkjugarðs. Þetta kallar á bættar sjóvarnir og talsverðar viðgerðir.  Eins og sést á meðfylgjandi myndum hefur orðið mikið tjón fyrir samfélagið okkar,“ segir Almar.

Hverjar eru helstu áhyggjur bæjarins varðandi sjóvarnir á Álftanesi og í Garðahverfi?  ,,Við höfum miklar áhyggjur af viðvarandi sjávarágangi og áhrifum hans á samfélagið. Það er nauðsynlegt  að styrkja sjóvarnir til að koma í veg fyrir frekari skemmdir og eignatjón.“  

Endurgera og hækka sjóvarnir

Hvaða aðgerðir eru í áætlun til að bæta sjóvarnir á þessu svæði, og er hægt að flýta þeim?  ,,Það stendur til að endurgera og hækka sjóvarnir, sérstaklega þar sem tjón hefur orðið mest. Á áætlun þessa árs er gert ráð fyrir að bæta og lengja sjóvarnir við Hliðnesveg. Við förum núna í samtal við Vegagerðina til að flýta öðrum aðgerðum.“  

Mikilvægt að Vegagerðin og stjórnvöld komi að málinu með fjármögnun og ráðgjöf

Hver gæti aðkoma ráðherra, Vegagerðarinnar og Náttúruhamfaratryggingar Íslands verið og í hvaða formi?  ,,Til að tryggja hraða framkvæmd er mikilvægt að Vegagerðin og stjórnvöld komi að málinu með fjármögnun og ráðgjöf, þar sem sjóvarnir eru hluti af landsáætlun um náttúruvá. Einnig verður leitað eftir bótum vegna tjóns frá Náttúruhamfaratryggingum Íslands,“ segir Almar. 

Leggst kostnaðurinn alfarið á Garðabæ eða tekur Vegagerðin og Náttúruhamfaratryggingar Íslands þátt í kostnaðinum við sjóvarnargarð? ,,Ríkið mun þurfa að taka þátt í kostnaðinum, enda eru sjóvarnir mikilvægur hluti af sameiginlegum innviðum sem eiga að njóta ríkisstuðnings.“

Vilja tryggja varanlega lausn 

Verða gerðar einhverjar langtímaáætlanir til að vernda þessi svæði fyrir frekari sjávarágangi í framtíðinni?  ,,Já, við erum að vinna að heildstæðri áætlun um styrkingu sjóvarna. Við viljum auðvitað fyrst og fremst flýta framkvæmdum og vanda þær  til að tryggja varanlega lausn,“ segir Almar að lokum. 

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins