Fyrsti deilibílinn til Garðabæjar

Garðabær er að hefja þátttöku í tilraunaverkefni sem snýst um að meta áhrif þess að innleiða deilibílaþjónustu hjá sveitarfélaginu. Verkefnið er leitt af verkfræðistofunni EFLU í samstarfi við Zipcar deilibílaleigu, Garðabæ, Hafnarfjörð og Akureyri með styrk frá rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar.

Markmiðið er að efla vöxt deilibíla á Íslandi, enda hafa rannsóknir sýnt að þeir geti verið mikilvægur liður í að auðvelda íbúum að lifa án einkabílsins og stuðla þannig að breyttum ferðavenjum. Deilibílar eru vel þekkt fyrirbæri víða um heim en hér á landi hefur slík þjónusta aðeins verið í boði miðsvæðis í Reykjavík og í Kópavogi. Tilraunaverkefnið er liður í því að innleiða deilibílaþjónustu í fleiri hverfum og bæjum, þar á meðal í Garðabæ.

Zipcar deilibíll staðsettur miðsvæðis á Garðatorgi

Einn Zipcar deilibíll verður aðgengilegur íbúum á Garðabæ í að minnsta kosti sex mánuði í tilraunaskyni. Vonast er til að móttökurnar verði góðar og rekstrargrundvöllur áframhaldandi deilibílaþjónustu í Garðabæ verði tryggður í kjölfarið enda eru sex mánuðir oft sá tími sem tekur fyrir deilibíl að verða sjálfbær í rekstri.

Framlag Garðabæjar felst fyrst og fremst í úthlutun og merkingu bílastæðis fyrir einn deilibíl og aðstoða eins og kostur er við innleiðingu þjónustunnar. Deilibíllinn í Garðabæ verður staðsettur á sérmerktu stæði á miðju Garðatorgi. Umrætt bílastæði verður merkt á næstu dögum og í kjölfarið má búast við að bíllinn verði tilbúinn til leigu.

Þjónustan virkar þannig að fólk bókar bílinn, sækir hann og skilar svo aftur á sama stað í sérmerkt bílastæði deilibílaþjónustunnar. Á vefnum Zipcar.is er hægt að sjá nánari upplýsingar um þjónustuna.

Deilibíllinn er áhugaverð viðbót við fjölbreytta samgöngukosti sem íbúum og gestum Garðabæjar stendur til boða, svo sem gönguferðir, hjól, rafskútur og almenningssamgöngur.

Á meðfylgjandi mynd með frétt má sjá frá vinstri, Gísla Þór Guðmundsson frá Zipcar Íslandi, Guðbjörgu Brá Gísladóttur deildarstjóra umhverfis- og framkvæmda hjá Garðabæ, Gunnar Einarsson bæjarstjóra Garðabæjar, Björgu Fenger forseti bæjarstjórnar Garðabæjar og Arnþór Jónsson sölustjóra hjá ZipCar Íslandi.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar