Frestur til að skila inn athugasemdum vegna Arnarlands framlengdur til 20. janúar

Frestur til að skila inn athugasemdum um tillögur að breytingu á aðal- og deiliskipulagi Arnarlands hefur verið framlengdur til 20. janúarHaldinn var opinn íbúafundur um nýja tillögu að breytingu á aðal- og deiliskipulagi

Arnarlands þann 4. desember. Á fundinum var farið yfir breytingar sem gerðar hafa verið á skipulaginu frá fyrri tillögum.

Í Arnarlandi er áhersla lögð á öflugt og líflegt borgarumhverfi sem styrkir nærumhverfið og bætir lífsgæði þeirra sem búa og starfa á svæðinu sem og í nálægð við það. Þar er gert ráð fyrir blöndu af íbúðum, ýmissi nærþjónustu og heilsuklasa þar sem áhersla er á aðsetur fyrir fjölbreytt fyrirtæki tengd heilsu og hátækni.

Tillögur að breytingu á aðal- og deiliskipulagi Arnarlands eru  aðgengilegar á vef Garðabæjar og í skipulagsgátt. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn athugasemdir við tillögurnar.

Frestur til að skila inn athugasemdum hefur verið framlengdur og rennur út 20. janúar 2025.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins