Framkvæmdir hefjast við Garðabæjarstokk árið 2034

Nú gefst áhugasömum kostur á að fylgjast grannt með stöðu framkvæmdir við Borgarlínu, stofnvegi og göngu- og hjólastíga á nýjum vef, verksja.is.

Verksja.is er ný upplýsingagátt þar sem finna má upplýsingar um allar helstu framkvæmdir sem heyra undir Samgöngusáttmálann. Yfirlits- kort, staða framkvæmda, umfang, áætluð verklok, myndefni og ýmiss annar fróðleikur.

Garðabær og fimm sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu , Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes, gerðu í haust samkomulag við íslenska ríkið um uppfærðan sáttmála sem felur í sér uppbyggingu á samgönguinnviðum og almenningssamgöngum á svæðinu til ársins 2040.

Í uppfærðum Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins er megin áhersla lögð á styttri ferðatíma, minni tafir og aukið umferðaröryggi. Uppbygging stofnvega og stórbættar almenningssamgöngur, auk fjölgunar hjóla- og göngustíga eru lykilþættir í að tryggja betri samgöngur.

Stofnvegir: Samkvæmt uppfærðum Samgöngusáttmála verður ráðist í 6 ný verkefni við stofn- vegi á höfuðborgarsvæðinu auk þeirra þriggja sem þegar er lokið. Öll verkefnin eiga að auka flæði og umferðaröryggi. Framkvæmdir við Arnarnesveg eru í gangi en tenging hans við Breiðholtsbraut og Rjúpnaveg verður mikil samgöngubót.

Borgarlínan: Er almenningssamgangnakerfi (Bus rapid transit) þar sem Borgarlínuvagnar munu að mestu aka í sérrými og hafa forgang á gatnamótum. Þannig munu Borgarlínuvagnar ferðast um umferðarþyngstu svæði höfuðborgarsvæðisins án þess að önnur umferð hafi áhrif á ferðir þeirra. Fossvogsbrú er hluti af 1. lotu Borgarlínu en að auki er gert ráð fyrir gangandi og hjólandi vegfarendum um brúna. Áætlað er að um 10 þúsund manns muni daglega nýta sér brúna. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist snemma á nýju ári.

Göngu- og hjólastígar: Áætlað að byggja upp alls um 100 km stígakerfi á höfuðborgarsvæðinu, auk undirganga og brúa. Nú þegar er framkvæmdum lokið við um 20 km af göngu- og hjólastígum. Gert er ráð fyrir að um 13% af fjárfestingum Samgöngusáttmálans fari í göngu- og hjólastíga, göngubrýr og undirgöng.

Framkvæmdir hefjast við Garðabæjarstokk árið 2034

Ef horft er til framkvæmda er tengjast Garðabæ beint að þá er reiknað með að Hafnarfjarðarvegur verði lagður í vegstokk sem tryggja mun frjálst flæði umferðar um tvenn gatnamót sem í dag eru ljósastýrð. Stokkurinn má s.s. ná frá gatnamótum, Álftanesvegar, Hafnarfjarðarvegur og Reykjavíkurvegar í Engidal að gatnamótun Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar. Þrátt fyrir að þessi tvenn gatnamót afkasti umferð þokkalega er fyrirhuguð talsverð þétting byggðar í grennd við fyrirhugaðan stokk sem auka mun álagið á þessum gatnamótum umtalsvert og viðbúið að langar biðraðir myndist á álagstímum.

Sérrými Borgarlínunnar og hjóla – og göngustígar verða lagðir á yfirborði stokksins aðskildir frá akandi umferð.

Hönnun á stokknum er ekki hafin og endanleg útfærsla stokksins liggur ekki fyrir. Í uppfærðri framkvæmdaáætlun er gert ráð fyrir 450 m löngum stokki og að framkvæmdir hefjist á árinu 2034.
Áætlanir miðast við að framkvæmdir hefjist og ljúki á síðasta tímabili framkvæmdaáætlunar samgöngusáttmálans á árunum 2035 – 2040. Áætluð verklok við Garðabæjarstokkinn er árið 2040 og áætlaður kostnaður er 12,8 ma.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar