Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið vegna mikils hvassveðurs sem spáð er fyrir um næstu tvo daga.
Mikilvægt er að foreldrar og forráðafólk grunnskólabarna í Garðabæ fylgist vel með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum tilmælum frá yfirvöldum sem gætu haft áhrif á skóla- og frístundastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni.
Skóla- og frístundastarf fellur ekki niður nema tilkynnt sé um það sérstaklega, þannig að mikilvægt er að fylgjast vel með tilkynningum frá skólum.
Veðurfar og aðstæður geta verið mismunandi eftir hverfum og breyst skjótt með ófyrirséðum hætti. Mikilvægt er að fólk fari ekki af stað til skóla eða vinnu ef það treystir sér ekki eða er vanbúið til farar, t.d. ef bifreið er ekki búin til vetraraksturs.