Nemendur á miðstigi Flataskóla sýndu söngleikinn Grease á dögunum við mikinn fögnuð áhorfenda. Það voru nemendur í leiklistarfjölvali á miðstigi sem höfðu æft söngleikinn í fjölvalstímum á haustönninni undir stjórn þriggja kennara skólans. Áætlað var að sýna verkið í byrjun ársins en vegna húsnæðisþrenginga skólans þurfti að fresta sýningum um nokkurn tíma. Í marsmánuði fékk sýnin-gin síðan inni í Tónlistarskólanum fyrir nokkrar æfingar og verkið var loks sett á svið í sal Tónlistarskólans fyrir aðra nemendur Flataskóla og forráðamenn þann 10. mars sl. Óhætt er að segja að vel tókst til, nemendur skiluðu hlutverkum sínum með miklum sóma og sungu og léku af mikilli list.
Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum. Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar. Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.
Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.
Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins