Fjör í Garðabæ á 17. júní

Fjölskyldur eru boðnar velkomnar á Garðatorg á dagskrá sem miðar að því að kynslóðir geti fagnað þjóðhátíðardeginum saman. Fjölbreytt fjölskyldudagskrá verður á Garðatorgi, kaffihlaðborð Kvenfélags Garðabæjar í Sveinatungu á Garðatorgi og hátíðartónleikar í tilefni 80 ára afmæli lýðveldisins.

Dagskráin er ókeypis en ágóði kaffihlaðborðs Kvenfélags Garðabæjar rennur til góðgerðamála.

Dagskráin verður svona:

13:00

  • Skrúðganga

Skátafélagið Vífill og Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar leiða göngu sem fer frá Hofsstaðatúni á Garðatorg

13:30 – 16:00

  • Fjallkona, Latibær og Sigga Ózk
    Einnig koma fram Sólon ofurmaður, Ingó Geirdal töframaður og söngkonurnar Jóna Margrét og Anita. Þá dansar hópur frá Dansskóla Birnu Björns. Dagskráin fer fram á sviðið í göngugötunni, Garðatorgi 4

13:30-16:00

  • Hoppukastalar
    Bílastæði Garðatorgs breytt í svæði fyrir fjör sem Skátafélagið Vífill hefur umsjón með

13:00 -16:00

  • Kaffihlaðborð Kvenfélags Garðabæjar í Sveinatungu

Brauðtertur, hnallþórur og randalínur að hætti kvenskörunga

14:00 – 16:00

  • Fánasmiðja og andlitsmálun
    Föndur og andlitsmálun á Garðatorgi 7
  • Bóksafn Garðabæjar 
    Notaleg stemning, spil, tafl og myndir til að lita.
  • Hönnunarsafn Íslands 
    Sýningarnar Hönnunarsafnið sem heimili, Strá og greinar og Eldblóm. Körfugerðarkona í vinnustofunni.
  • Minjagarðurinn á Hofsstöðum 
    Skyggnumst inn í fortíðina og fræðumst saman.
  • Aftur til Hofsstaða 
    Margmiðlunarsýning á Garðatorgi 7 spannar sögu Garðabæjar frá landnámi.
  • Kaka og gjöf í tilefni af 80 ára lýðveldisafmæli Íslands
    Lýðveldiskaka borin fram á Garðatorgi 4 á fjölskylduskemmtun og Fjallkonubókin afhent á Bókasafni Garðabæjar en hvoru tveggja er í boði forsætisráðuneytisins.

20:00

  • Hátíðartónleikar í tilefni 80 ára afmælis lýðveldisins í Tónlistarskóla Garðabæjar
    Hallveig Rúnarsdóttir sópran- Hildigunnur Einarsdóttir mezzosópran- Gunnar Guðbjörnsson tenór- Bergþór Pálsson baritón- Eva Þyri Hilmarsdóttir píanó. 

    Íslenskar söngperlur fluttar ásamt verðlaunalagi Atla Ingólfssonar við texta Þórarins Eldjárns, Ávarp fjallkonunnar. Aðgangur ókeypis.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins