Garðabær hefur auglýst tillögu að breytingu á deiliskipulagi blandaðar byggðar í Arnarlandi og tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar.
Skipulagstillaga til forkynningar var auglýst sumarið 2023 og samhliða voru haldnir tveir opnir kynningarfundir. Fjöldi ábendinga og umsagna barst á kynningarstigi og hefur verið unnið úr þeim við mótun deiliskipulagsins og hefur tillagan því tekið talsverðum breytingum.
Kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 11. júní í sal bæjarstjórnar Sveinatungu að Garðatorgi 7 og hefst hann klukkan 17.00. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi.
- Í Arnarlandi er nú gert ráð fyrir blandaðri byggð með 3-6 hæða fjölbýlishúsum ásamt atvinnu-, verslunar og/eða þjónustuhúsnæði næst Hafnarfjarðarvegi.
- Sérstök kennileitisbygging/atvinnuhúsnæði getur orðið allt að 8 hæðir.
- Tvær aðkomuleiðir eru að byggðinni, megin aðkoma að byggðinni er frá Fífuhvammsvegi en einnig er gert ráð fyrir undirgöngum undir Arnarnesveg frá Akrabraut fyrir akandi og gangandi/hjólandi umferð.
- Gert er ráð fyrir sér undirgöngum fyrir Borgarlínu við Hafnarfjarðarveg.
- Til móts við atvinnuhúsnæði fyrir miðju svæðisins er gert ráð fyrir verslunar- og/eða þjónusturými á jarðhæðum í tengslum við miðlægt torg þar sem m.a. er gert ráð fyrir biðstöð Borgarlínu.
- Á svæðinu er gert ráð fyrir u.þ.b. 500 íbúðum og u.þ.b. 40.000 m² af verslunar, skrifstofu og þjónusturými.
- Meginmarkmið skipulagsins er að leggja grunn að öflugu borgarumhverfi sem styður við svæðið sem samgöngumiðað svæði við samgöngu- og þróunarás.
- Helstu áherslur eru á starfsemi og uppbyggingu sem styður við virkan lífsstíl og blandaða byggð með þjónustu í nærumhverfinu og góða og skilvirka tengingu við megin umferðaæðar, stíga og opin svæði.
Deiluskipulagsbreyting Arnarlands – Tillaga að deiliskipulagi blandaðrar byggðar
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar athugasemdir til og með 6. ágúst 2024 í gegnum vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is (mál: 556/2023) eða á netfangið [email protected].
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar athugasemdir til og með 6. ágúst 2024 í gegnum vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is (mál: 556/2023) eða á netfangið [email protected].