Fjölbreytt menningardagskrá Garðabæjar kynnt í nýjum dagskrárbæklingi

Menningardagskrá í Garðabæ haustið 2023 er nú komin úr prentun og hægt að nálgast eintak á Bókasafni Garðabæjar, Hönnunarsafni Íslands og í þjónustuverinu á Garðatorgi 7. 

Dagskrána má finna á heimasíðu Garðabæjar (https://www.gardabaer.is/mannlif/menning-og-listir/haustdagskra-menningar-i-gardabae/)

Fjölskyldustundir á Bóksafni Garðabæjar og Hönnunarsafni Íslands eru reglulega á dagskrá sem og erindi, leiðsagnir og fræðslufyrirlestrar fyrir fullorðna. 
Þá er tónleikaröðin Tónlistarnæring á dagskrá fyrsta miðvikudag í mánuði klukkan 12:15.

Menningardagskráin sem kynnt er í bæklingnum er gestum að kostnaðarlausu.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar