Boðað er til félagsfundar í Kvenfélagi Garðabæjar 5. október 2021.
Nú er loksins komið að því að við getum farið að hittast á fundi á Garðaholti sem hefst kl.19:00.
Við vonumst svo sannarlega til að sjá ykkur allar hressar og kátar á fyrsta fundi vetrarins og að félagsstarfið okkar geti haldist með hefðbundnum hætti þetta starfsár. Hlökkum til að sjá ykkur.

Dagskrá kvöldsins:
- Venjuleg fundarstörf
- Formaður bíður konur
velkomnar,
skýrsla stjórnar - Ritari les síðustu
fundargerð - Ferðanefnd
- Matur framreiddur
- Skemmtiatriði kvöldsins eru þær Tinna Margrét Hrafnkelsdóttir og Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir. Sýna úr frumsömdum söngleik “Pálmar”
Þema kvöldsins verður “Hattakvöld”
Þetta er matarfundur boðið verður upp á kjúklingarétt, salat og sætan bita á eftir, hvítvín og kristal.
Það þarf að vera búið að leggja inn kr. 4000.- á bankareikninginn 0318-26-11124 kt. 700169-7319 fyrir 30. september þá eru þið líka skráðar.
Það þarf að tilkynna þátttöku með nafni og síma til Guðrúnar Eggertsdóttur [email protected] gsm: 6989359
Fjölmennum á fundinn og gestir hjartanlega velkomnir.
“Þakklæti er dýrmæt gjöf sem ætti að gefa óspart”
Kærleiks kveðja,stjórn kvenfélagsins
Helena Jónasdóttir, formaður