Feðgarnir Baldur Bragason og Baldur Bragi léku fjóra hringi á Leirdalsvelli GKG á 22 tímum í síðustu viku,
geri aðrir betur! Eiginkonan og yngri sonur léku með þeim fyrsta hringinn en svo bættust aðrir við á seinustu tveimur hringjunum.
Fékk nokkrar áhugaverðar og geggjaðar hugmyndir á Covid-tímanum
En hvernig koma það til að Baldur ákvað að reyna leika 72 holur á sólarhring? ,,Á Covid tímum fékk ég nokkrar áhugaverðar og geggjaðar hugmyndir. Ein þeirra var að reyna að spila 72 holur á innan við sólarhring, þ.e. spila 4 golfhringi í röð án mikillar hvíldar og má því kalla þetta nokkurs konar golfmarathon viðburð. Sumrin á Íslandi gefa okkur tækifæri á að vera úti allan sólarhringinn fyrir þá sem kjósa að gera það og 21. júní er lengsti dagur ársins á Íslandi. Í kringum þennan lengsta dag ársins er birtan frábær og bjart allan sólarhringinn. Næt- urnar eru einnig gríðarlega friðsælar og fallegar á sumrin á Íslandi,” segir Baldur og heldur áfram: ,,Golf-marathon reynir auðvitað enn meira á líkamlegan og andlegan styrk þegar 72 holur eru spilaðar á innan við sólarhring heldur, en að spila 72 holur á 4 dögum, sem er venjan í helstu golfkeppnum á Íslandi og um allan heim. Kosturinn er augljós – það tekur aðeins einn sólarhring að leika 72 holur í staðinn fyrir 4 daga. Hver hefur tíma í 4 daga keppni árið 2023?” segir hann brosandi.
Sagði fjölskyldunni að það væri komin ný áskorun á listann hjá þeim gamla
Það var góð langtímaspá fyrir 21. júní og nokkrum dögum áður hafði Baldur samband við Úlfar Jónsson, golfgoðsögn og þjónustustjóra hjá GKG. ,,Ég sagði honum frá þessu golfmarathon viðburði sem mig langaði að framkvæma í Leirdalnum/GKG, mínum heimaklúbbi. Úlfar tók strax vel í þessa geggjuðu hug-mynd og aðstoðaði mig við að setja upp rástímaplan og hvernig þetta væri mögulega hægt að framkvæma. Ég sagði svo fjölskyldunni að það væri komin ný áskorun á listann hjá gamla, þ.e. spila 72 holur á innan við sólarhring. Viðtökurnar hjá fjölskyldunni voru framar vonum og óskaði eldri sonur minn, Baldur Bragi, strax að fá að koma með og reyna við þessa áhugaverðu golfþrekraun. Inga konan mín og Daníel yngri sonur minn vildu einnig spila með okkur fyrsta hringinn og við ákváðum í sameiningu að byrja kl. 20:30 á miðvikudeginum 21 júní 2023,” segir hann.
Rástímaplanið var svona:
Miðvikudagur 21/6 kl. 20:30
Fimmtudagur 22/6 kl. 01:30
Fimmtudagur 22/6 kl. 08:20
Fimmtudagur 22/6 kl. 14:20
Það hafði engin áhuga að spila með okkur kl. 01:30
Hollin voru svo opin öllum öðrum golfurum og gat því hver sem er spilað með þeim. ,,Við fengum einn góðan vin til að spila með okkur á fimmtudeginum kl. 08:20, en það hafði enginn áhuga að spila með okkur á fimmtudeginum kl. 01:30 um hánóttina. Það fannst mér undarlegt, því fáir hafa spilað golf á þessum tíma áður og veðrið var frábært,” segir Baldur og heldur áfram: ,,Við feðgar náðum að klára þessar 72 holur og gengum um það bil 42 km á c.a. 22 klukkustundum. Spilamennskan hjá okkur feðgum var bara framar vonum, en auðvitað voru slæmar holur inn á milli. Við vorum nokkuð þreyttir í lokin og erfitt að halda fullri einbeitingu síðasta hringinn. En við pössuðum okkur á því að hafa alltaf gaman og hafa alltaf einhverja keppni í gangi svo að fókusinn og getan væri sem oftast til staðar,” segir hann.
Besti hringur Baldurs var þriðji hringurinn, kl. 08:20 á fimmtudeginum, sem hann lék á 82 höggum (ein sprengja, 8 högg) sem var lækkun á forgjöf úr 9,9 í 9,8. ,,Í hollinu var háð mikil keppni gegn miklum keppnismanni og góðum vin, Sigga Guðjóns þvagskurðarlækni. Frábært að fá hann með okkur einn hring í þessari geggjuðu golfþrekraun og ég er nokkuð viss um að hann verði með næst. Kannski verður golf-marathon árlegur viðburður hjá GKG eða jafnvel GSÍ í framtíðinni? Golf-Marathon hugmyndinni er hér með kastað út í kosmosið,” segir Baldur brosandi sem vill nota tækifærið og þakka Úlfari og GKG fyrir að sýna þessari hugmynd áhuga.