Enskt sumar í Vídalínskirkju

Strengjahljómsveitin Spiccato mun halda tónleika í Vídalínskirkju á morgun, laugardaginn 1. mars kl. 17-18, en þar mun hljómsveitin flytja verk eftir ensk tónskáld (Purcell, Handel, Boyce, Elgar, Delius, Holst).

Verkin gefa innsýn í ólík tímabil sögunnar allt frá barokktónlist, klassík, rómantík til nútíma þjóðlaga hughrifa.
Strengjasveitin Spiccato var stofnuð árið 2012 af hópi strengjaleikara sem vettvangur til að flytja strengjatónverk – ekki síst frá Barokk tímanum – þar sem jafnræði ríkir milli hljóðfæraleikara, enginn einn stjórnar. Á æfingum er skipst á skoðunum um túlkun tónverka og allir fá tækifæri til að koma fram sem einleikarar. Á þeim rúmum tiu árum hefur sveitin haldið tuttugu tónleika, flesta í Reykjavík. Aðgangur á tónleikana er ókeypis

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins