Einn okkar fremsti tenórsöngvari kemur fram í Garðabæ

Kolbeinn Jón Ketilsson tenórsöngvari, mun koma fram á hádegistónleikum í Tónlistarskóla Garðabæjar miðvikudaginn 8. september næstkomandi. Matthildur Anna Gísladóttir mun leika með á píanó.

Kolbeinn er einn af okkar fremstu söngvurum gegnum tíðina, sungið í fjölmörgum uppset-ningum Íslensku Óperunnar, í Þjóðleikhúsinu og í óperuhúsum og tónlistarsölum í Evrópu, Asíu og N-Ameríku. Hann hefur sungið með mörgum frægustu hljómsveitarstjórum í heimi eins og Lorin Maazel, Zubin Mehta, Antonio Pappano og Kurt Masur ásamt að hafa unnið með mörgum helstu leik-stjórum og söngvurum sinnar kynslóðar.”

Garðapósturinn spjallaði við Kolbein og spurði frétta. „Af mér er allt gott að frétta nema hvað að fyrir mig eins og aðra í mínum bransa og svipuðum er kóvítið búið að setjar heldur betur strik í reikninginn. Nú hef ég ekki sungið í óperu frá starfsárinu 2019/2020.”

Kolbeinn segir að það hafi lengi blundað í honum smíðafúskari sem hafi fengið útrás síðustu ár

Það blundar smíðafúskari í Kolbeini

Hvað hefurðu þá haft fyrir stafni undanfarið? ,,Ég hef reynt að halda mér við raddlega eins vel og kostur hefur verið á, sungið við ýmis tækifæri og kennt söng eins og mögulegt hefur verið. Svo hefur lengi blundað í mér smíðafúskari sem hefur fengið útrás síðustu ár.”

Nú? ,,Já, ég og konan mín, Unnur A. Wilhelmsen sem er af íslenskum ættum, festum kaup á húsi hér í Drammen í Noregi, húsi þar sem hún er fædd og uppalin í. Elsti hluti hússins er rúmlega 180 ára, og við höfum verið að dunda okkur við að taka það í gegn og betrumbæta. Að takast á við svona lagað er náttúrulega sagan endalausa en sem betur fer vissi maður það ekki þegar byrjað var. Þetta er samt allt að koma, vonandi!,“ segir Kolbeinn og brosir út í annað.

Ertu búinn að búa lengi í Noregi? ,,Við fluttum hingað 2016 frá Köln í Þýskalandi þar sem við höfðum búið síðan 1998 en þar var ég fastráðinn við óperuna til 2000. Konan mín óskaði að vera nálægt aldraðri móður sinni hér í Drammen og því ákváðum við að flytja. Tengdamóðir mín lést svo einungis 2 mánuðum eftir að við fluttum en við ákváðum að vera hér áfram, enda búin að flytja mjög oft í gegnum tíðina og búin fá okkar skammt af búferlaflutningum.”

Hvernig bær er Drammen? ,,Í Drammen búa um 110 þúsund manns nú eftir að hann var sameinaður nágrannabæjarfélögunum. Bæjarstæðið er mjög fallegt, stór á rennur um miðjan bæinn og veðrið er gott. Hálftíma lestarferð er inn í miðborg Oslóar ef maður vill stórborgar-stemningu. Drammen var fyrr á tímum mikill iðnaðarbær, margar pappírsverksmiðjur stóðu við ána enda auðvelt að fleyta timbri frá skógunum í uppsveitum, mengun var mikil og orðsporið ekki upp á það besta. Þetta hefur allt breyst mjög síðustu 20-30 árin og nú er bærinn eftirsóttur til búsetu.”

,,Þegar ég var 5 ára fluttist fjölskyldan á Álftanes og þar bjuggum við næstu 10 árin. Þar var gott að alast upp, lítil byggð miðað við það sem nú er og eiginlega sveit og þó nokkrir bændur stunduðu þar hefðbundinn íslenskan búskap,“ segir Kolbeinn

Bjó á Álftanesi í 10 ár

En hvaðan ertu ættaður? ,,Ég er fæddur á Ísafirði og var þar mikið á sumrin, móðir mín, Selma Samúelsdóttir, var ættuð frá Ísafirði og afi minn, Samúel Jónsson, átti og rak Smjörlíkis-gerð Ísafjarðar, það var alltaf mikið ævintýri að fara vestur og „hjálpa“ afa í smjörlíkisgerðinni. Faðir minn, Ketill Jensson, var fæddur í Reykjavík. Þegar ég var 5 ára fluttist fjölskyldan á Álftanes og þar bjuggum við næstu 10 árin. Þar var gott að alast upp, lítil byggð miðað við það sem nú er og eiginlega sveit og þó nokkrir bændur stunduðu þar hefðbundinn íslenskan búskap. Enginn gagnfræðaskóli var á Álftanesi og var okkur unglingunum ekið með skólarútu í Gagnfræðaskóla Garðahrepps. Síðan lá leiðin í Verslunarskóla Íslands og enn síðar í söngnám við Tónlistarháskóla Vínarborgar. Söngstarfinu fylgja mikil ferðalög og þegar litið er um öxl sést að maður er búinn að fara ansi víða.”

Saknarðu Íslands? ,,Já, að sjálfsögðu, maður saknar fjölskyldu og vina en svo er það líka þannig að maður er eiginlega hvergi meiri Íslendingur en í útlöndum, það er engin tilviljun að mörg fegurstu ættjarðarljóðin íslensku eru ort á erlendri grundu. Núna á okkar tæknivæddu tímum er fjarlægðin samt ekki svo mikil og auðvelt að fylgjast vel með því sem er að gerast heima.
Á þessum 5 árum sem ég hef búið hér í Noregi hefur áhugi minn aukist mjög á sameiginlegri sögu Íslands og Noregs. Rætur þessara tveggja þjóða liggja svo þétt saman allt frá landnámi. Nú í sumar fór ég til Rivedal í Dalsfirði í V-Noregi en þaðan er talið að Ingólfur Arnarson hafi lagt upp til Íslands um 870. Það er dálítið sérstök tilfinning að líta landslagið sem Ingólfur hafði fyrir augunum fyrir um 1150 árum síðan! Ég er með spennandi tónleikaverkefni í smíðum sem sem fjallar óbeint um sameiginlega sögu landanna tveggja sem sýnt verður á Íslandi og í Noregi á komandi ári. Þar verður fléttað saman ýmsum listgreinum og að sjálfsögðu líka sungið.”

Aðspurður segir Kolbeinn langt síðan hann söng síðast á Íslandi „Það er svo langt síðan að ég man það ekki! Allavega löngu fyrir Covid þannig að það er kominn tími til,“ segir hann og hlær við.

Hvað ætlarðu að syngja á tónleikunum? ,,Þetta verður blönduð dagskrá, íslensk sönglög sem ég hef ekki sungið lengi, sum aldrei opinberlega og svo einnig erlent efni, ég held bara nokkuð góð blanda,“ segir hann hress í bragði að lokum um leið og hann biður fyrir bestu kveðjur heim.

Tónleikar Kolbeins í sal Tónlistarskóla Garðabæjar eru liður í hádegistónleikaröðinni Tónlistar-næring sem verða á dagskrá í hverjum mánuði en tónleikar Kolbeins hefjast kl. 12.15 miðvikudaginn 8. september. má m.a. nálgast á tónleikunum eða í þjónustuveri Garðabæjar, Hönnunarsafni Íslands og Bókasafni Garðabæjar.

Kolbeinn Jón Ketilsson tenórsöngvari, mun koma fram á hádegistónleikum í Tónlistarskóla Garðabæjar á morgun, miðvikudaginn 8. september. Matthildur Anna Gísladóttir mun leika með á píanó.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar