Stór meirihluti íbúa Garðabæjar er ánægður með að búa í Garðabæ. Þetta leiða niðurstöður nýrrar þjónustukönnunar Gallup í ljós þar sem 91% svaranda segjast vera ánægð með Garðabæ sem stað til að búa á.
Markmið könnunarinnar er að kanna ánægju með þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins, gera samanburð þeirra á milli og fylgjast með breytingum frá fyrri mælingum. Í könnuninni er spurt út í ánægju með þætti á borð við aðstöðu til íþróttaiðkunar, þjónustu grunn- og leikskóla, skipulagsmál og þjónustu við barnafjölskyldur. Könnunin var framkvæmd dagana 22. nóvember 2024 til 6. janúar 2025.
Mikil ánægja með þjónustu við fjölskyldur og barnafólk
Skorið sem snýr að heildaránægju með sveitarfélagið sem stað til að búa á hækkar á milli ára og er nú 4,3 (á kvarðanum 1-5).
Garðabær er talsvert yfir meðaltali sveitarfélaga í langflestum liðum. Sérstaklega er þó vert er að vekja athygli á niðurstöðum er snúa að skólamálum í bænum.
Garðabær skorar hæst í þjónustu grunnskóla
Þegar kemur að ánægju með þjónustu grunnskóla sveitarfélagsins skorar Garðabær hæst í samanburði níu stærstu sveitarfélaganna, með 4,1.
Garðabær mælist einnig vel þegar kemur að þjónustu við barnafjölskyldur. Þar er Garðabær með skorið 3,9, sem er hækkun um 0,2 á milli ára.
Garðabær skorar hátt í leikskólamálum

Þegar spurt er út í leikskólamálin kemur Garðabær vel út, með 4,1 og er þar meðal þeirra sveitarfélaga sem eru með hæsta skor. Þetta er hækkun um 0,3 á milli ára sem sýnir enn frekar að þær umfangsmiklu breytingar sem gerðar voru á leikskólaumhverfinu í bænum hafa skilað árangri.
Niðurstöður er snúa að aðstöðu til íþróttaiðkunar í bænum annars vegar og gæðum umhverfis í nágrenni við heimili svarenda eru einnig eftirtektarverðar, hvorutveggja er 4,2.
Gefur góða innsýn í upplifun bæjarbúa
„Það gleður mig að sjá að bæjarbúar eru ánægðir með þjónustu Garðabæjar. Niðurstöður könnunarinnar gefa okkur góða innsýn inn í upplifun bæjarbúa og þar af leiðandi tækifæri til að gera betur og halda áfram að bæta þjónustuna,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar.
Niðurstöður fyrir Garðabæ úr þjónustukönnuninni eru aðgengilegar á vef Garðabæjar og þar má jafnframt sjá niðurstöður til samanburðar úr eldri könnunum.