Einar Hannesson ráðinn framkvæmdastjóri Sólar

Sólar ehf. hefur ráðið Einar Hannesson sem nýjan framkvæmdastjóra en hann tók við starfinu 1. mars síðastliðinn af Þórsteini Ágústssyni sem verið hefur framkvæmdastjóri hjá félaginu frá árinu 2007.

Einar hefur viðamikla reynslu af rekstri og stjórnun en fram á síðasta haust starfaði hann í tæp sex ár sem fram-kvæmdastjóri Fastus. Þar áður starfaði Einar lengstum sem útibússtjóri Landsbankans í Reykjanesbæ og forstöðu-maður hjá Icelandair Ground Services, auk þess að hafa setið í stjórnum ýmissa félagasamtaka og fyrirtækja. Einar er með BSc gráðu í iðnaðartæknifræði og MBA gráðu frá Háskóla Íslands.

Sólar eru eitt af stærstu ræstingarfyrirtækjum landsins með um 450 starfsmenn sem starfa við almenn þrif, hreingerningar og sérverkefni. Sólar er leiðandi í umhverfisvernd og voru fyrst ræstingafyrirtækja hér á landi til að fá leyfi til að nota Svaninn, norræna umhverfismerkið. Sólar hefur 10 ár í röð verið í hópi Framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo og eru á meðal þeirra 2,3% fyrirtækja sem uppfylla skilyrði Viðskiptablaðsins og Keldunnar um fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri.

„Við erum ánægð með að fá Einar til starfa hjá okkur til að leiða áframhaldandi stefnumótun og vöxt Sólar. Fyrirtækið hefur þróast hratt og tekist á við mikinn vöxt undanfarin ár undir stjórn Þórsteins fráfarandir framkvæmdastjóra, en hann mun áfram sinna ráðgjöf hjá Sólar auk þess að vera í eigendahópi félagsins,“ segir Ólafur Páll Einarsson stjórnarformaður Sólar, en Sólar þjónustar meðal annars nokkra aðila í Kópavogi og Garðabæ eins og skóla, leikskóla og önnur fyrirtæki.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar