Byggjum áfram á traustum grunni

Ég er fyrst og fremst Garðbæingur, stoltur Garðbæingur. Ég hef búið hérna meira og minna síðan ég var 2ja ára gamall og hér höfum við fjölskyldan komið okkur vel fyrir. Fyrir átta árum tók ég sæti í bæjarstjórn Garðabæjar. Þessi ár hafa verið skemmtileg og kennt mér margt. Ég er hreykinn af því sem við Sjálfstæðismenn höfum áorkað fyrir bæinn okkar á þessum kjörtímabilum.

Stjórnmál eru liðsíþrótt og bæjarfulltrúar Sjálfstæðismanna hafa unnið mjög vel saman undir styrkri forystu fráfarandi bæjarstjóra. Það er ekki annað hægt en að horfa björtum augum til framtíðar. Fjárhagsstaðan er sterk, ánægja með þjónustu bæjarins mælist mikil og það er eftirspurn eftir því að búa í bænum okkar. Sú sterka staða sem við Garðbæingar búum við varð hins vegar ekki til af sjálfu sér. Við getum átt á hættu að missa frá okkur þá stöðu ef við tökum henni sem sjálfsögðum hlut.

Garðabær í sókn

Ég er stoltur af því sem mér hefur verið treyst fyrir á tíma mínum í bæjarstjórn. Ég hef fundið mig vel í bæjarmálunum. Sú reynslu byggir að sjálfsögðu ofan á aðra reynslu sem ég hef viðað að mér úr ólíkum áttum. Á ég hér bæði við félagsstörf á vettvangi knattspyrnudeildar Stjörnunnar þar sem ég gegndi formennsku um sjö ára skeið sem og reynslu minnar úr atvinnulífinu. Ég er spenntur fyrir því hlutverki að leiða Sjálfstæðismenn í Garðabæ á komandi kjörtímabili. Það er gnótt tækifæra í Garðabæ sem hefur vaxið einna hraðast stærstu sveitarfélaga landsins síðustu ár. Við stefnum að því að halda áfram uppbyggingu með það að leiðarljósi að mæta þörfum ólíkra hópa og leyfa hverju svæði að njóta sinnar sérstöðu. Þannig byggjum við áfram á traustum grunni.

Uppbygging í Garðabæ, bæði á nýjum svæðum og svæðinu í kringum Garðatorg hefur haft afar jákvæð áhrif á mannlíf í bænum. Það eru ekki mörg ár síðan Garðabær var talinn vera dæmigerður svefnbær en það orðspor höfum við svo sannarlega rekið af okkur. Hingað hafa leitað spennandi verslanir, þjónusta og aukin menningarstarfsemi. Dregið hefur úr aðgreiningu milli svæða fyrir íbúabyggð annars vegar og atvinnustarfsemi hins vegar. Þessi þróun, í bland við áherslur á sviði heilsu, íþrótta og hreyfingar eru meðal þess sem býr til gott samfélag þar sem fólki líður vel.

Ég er klár í slaginn!

Í prófkjöri okkar Sjálfstæðismanna hafa gefið kost á sér 17 öflugir frambjóðendur. Sá áhugi er gleðiefni fyrir bæjarfélagið okkar. Ég er tilbúinn til að leiða þann kraftmikla hóp sem prófkjörið mun skila okkur til sigurs í sveitarstjórnarkosningunum þann 14. maí næstkomandi. Ég óska því eftir stuðning ykkar í forystusæti listans í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Garðabæ laugardaginn 5. mars. Ég er klár í slaginn!

Almar Guðmundsson, bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri, sækist eftir 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ 5. mars.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar