Bústoð fagnar 50 ára afmæli

Húsgagnaverslunin Bústoð sem staðsett er að Miðhrauni 24 í Garðabæ, fagnar 50 ára afmæli í mars á þessu ári.

Frá Keflavík til Garðabæjar

Bústoð opnaði fyrst í Keflavík þann 14. mars 1975 og hefur síðan þá vaxið og dafnað. Fyrir rúmlega tveimur árum tóku Björgvin Árnason og Birgitta Ósk Helgudóttir við rekstrinum og gerðu frábærar breytingar – meðal annars með því að opna glænýja verslun að Miðhrauni 24 í Garðabæ síðastliðið haust. Viðtökurnar hafa verið fram úr þeirra björtustu voum.

Falleg húsgögn og gjafavara

Verslunin hefur allt frá upphafi haft það að markmiði að bjóða upp á gæðavörur á góðu verði, meðal annars frá Calia Italia, Furnhouse og Skovby. Auk þess nýtur gjafavörudeild Bústoðar töluverðra vinsælda, með vörum frá Iittala, Bitz og fleira.

Bústoð var stofnað og hefur alla tíð verið í eigu Róberts Svavarssonar, Hafdísar Gunnlaugsdóttur og fjölskyldu. Fyrir rúmlega tveimur árum urðu eigendaskipti að fyrirtækinu þegar Björgvin Árnason, sem hafði rekið verslunina undanfarinn áratug þar á undan, tók við rekstinum. Hann ásamt Birgitta Ósk Helgudóttir meðeiganda sínum og verslunarstjóra í Garðabæ reka fyrirtækið í dag og hafa gert ýmsar breytingar, bæði á vöruúrvali og heimasíðu, en passað um leið að halda í gömlu gildin sem einkenna Bústoð. Stærsta breytingin var þó þegar þau opnuðu annað útibú síðastliðið haust að Miðhrauni 24 í Garðabæ. Viðtökurnar hafa verið alveg meiriháttar að þeirra sögn og alveg ljóst að ákvörðunin um að opna í Garðabænum var hárrétt.

Takk fyrir að vera hluti af sögu okkar – og framtíð!

„Markmiðið með opnun á nýrri verslun í Garðabænum var að bæta þjónustu við viðskiptavini á höfuðborgarsvæðinu en þar eigum við marga trausta viðskiptavini og fundum fyrir mikilli eftirspurn um að fá verslunina hingað. Það hefur reynst góð ákvörðun og verslunin gengið vel.“ segir Björgvin og Birgitta tekur undir „Við erum gríðarlega þakklát fyrir hversu vel okkur hefur verið tekið, bæði hér í Garðabænum og alla tíð í rauninni. Við viljum því nýta þetta tækifæri og þakka fyrir okkur.“

Afmælistilboð allan mars

Í tilefni af þessum stóra áfanga verður Bústoð með sérstök afmælistilboð í báðum verslunum út mars. Það er því um að gera að líta við og gera góð kaup.

Mynd: Björgvin og Birgitta fyrir miðju ásamt Björgu Fenger, formanni bæjarráðs Garðabæjar og Almari Guðmundssyni bæjarstjóra í Garðabæ er verslunin opnaði að Miðhrauni 24 í Garðabæ í lok september á síðasta ári.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins