Burstabærinn Krókur á Garðaholti er opinn alla sunnudaga í sumar frá kl. 11:30-15:30 og aðgangur ókeypis.
Samstarfið við Sumarmessur í Garðakirkju heldur áfram og spennandi viðburðir og messukaffi í hlöðunni á hverjum sunnudegi í sumar. Í Króki er gaman að taka þátt í ratleik sem fræðir og skemmtir gestum á öllum aldri. Verið velkomin!
Um burstabæinn Krók
Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær í eigu Garðabæjar sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir sem voru í eigu hjónanna Þorbjörgu Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar. Þorbjörg flutti í Krók vorið 1934 og bjó í Króki til ársins 1985.
Tilvalið er að fara í göngutúr um Garðaholtið og koma við í Króki í leiðinni einnig er hægt að leggja bílum við samkomuhúsið á Garðaholti (Krókur er staðsettur ská á móti samkomuhúsinu) við gatnamót Garðavegar og Garðaholtsvegar.
Sumarmessur í Garðakirkju
Í sumar er bærinn Krókur í samstarfi við Sumarmessur í Garðakirkju og alla sunnudaga í sumar verður messa í Garðakirkju kl. 11. Að lokinni sumarmessu verður boðið upp á veitingar í hlöðunni við Krók og jafnvel óvæntar uppákomur. Krókur er í göngufæri frá Garðakirkju.