Blómsveigur lagður á minnisvarða Jóns Sigurðssonar við Jónshús

Það var hátíðleg stund við félagsmiðstöðina Jónshús miðvikudaginn 16. júní sl. þegar eldri borgarar og börn í leikskólanum Sjálandi tóku forskot á 17. júní hátíðarhöld.

Í tilefni af þjóðhátíðardeginum 17. júní var lagður blómsveigur að minnisvarða Jóns Sigurðssonar sem er í garðinum við Jónshús.

Hildigunnur Hlíðar og Jón Gunnar Pálsson úr Félagi eldri borgara í Garðabæ lögðu blómsveiginn og nutu aðstoðar tveggja leikskólanemenda.

Börnin í leikskólanum Sjálandi sem er staðsettur í nágrenninu fjölmenntu í skrúðgöngu í garðinn þennan dag. Þau voru með fána og heimagerð hljóðfæri. Það var sungið saman, Hildigunnur Hlíðar og Jón Gunnar Pálsson úr Félagi eldri borgara í Garðabæ lögðu blómsveiginn og nutu aðstoðar tveggja leik-skólanemenda. Fjölmenni var við athöfnina. Börnin fengu svo að blása sápukúlur og allir nutu góða veðursins og samverunnar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar