Bæjaryfirvöld hafa mikinn áhuga á að Klaustrið gangi í endurnýjan lífdaga

Garðabær leitar um þessar mundir að áhugasömum og hæfum samstarfsaðila til að taka þátt í samstarfsverkefni um endurbætur, viðhald og rekstur á húsnæði Garðabæjar við Holtsbúð 87 í Garðabæ.Húsnæðið er betur þekkt undir heitinu Klaustrið og var áður í eigu Sankti Jósefssystra.

Kvöð á húsinu til ársins 2028

Í kaupsamningi Garðabæjar og systranna er kvöð, sem gildir til ársins 2028, um að húsnæðið verði nýtt fyrir starfsemi í þágu aldraðra eða annarrar sambærilegrar starfsemi á sviði mannúðar, heilbrigðismála, barna eða unglinga. Húsnæðið hefur verið í takmarkaðri notkun undanfarið og þarfnast samkvæmt fyrirliggjandi ástandsmati töluverðs viðhalds og endurnýjunar.

Leitað er að aðilum sem t.d. væru tilbúnir til að:
· Kaupa eða leigja húsnæðið að hluta eða í heild til að reka þar starfsemi sem rúmast innan ramma þeirra kvaða sem á því hvíla.
· Sjá um viðhald og endurbætur húsnæðisins m.t.t. þeirrar starfsemi.

Vilja glæða húsnæðið nýju lífi með öflugri starfsemi

Garðabær hefur mikinn áhuga á að húsnæðið gangi í endurnýjun lífdaga hvað varðar endurbætur og gott viðhald og að það sé gætt nýju lífi með öflugri starfsemi sem tekur tillit til umhverfisins og íbúa í nágrenninu.

Útboðsgögnin eru aðgengileg á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar á vefslóðinni
https://vso.ajoursystem.net/

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef eigi síðar en miðvikudaginn 17. júlí 2024, kl. 14:00.

Skilafrestur útboðsgagna er 17. júlí 2024 kl.14:00 og verða þau opnuð á sama tíma.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins