Garðbæingar fagna upphafi aðventu saman í miðbæ Garðabæjar laugardaginn 30. nóvember þar sem pop-up markaður, lifandi tónlist, skapandi smiðjur og jólaball gleðja viðstadda.
Svona lítur dagskrá Aðventuhátíðar út:
Pop-up markaður á göngugötunni
kl. 11-16 – Spennandi vörur sem gætu verið tilvaldar í jólapakkana!
Lifandi tónlist á göngugötunni
Kl. 13:00 – 14:30 – Barnakór Sjálandsskóla syngur jólalög. Jazztríó ásamt söngvurum flytja jólatónlist í notalegu umhverfi.´
Ó!róasmiðja í Hönnunarsafninu
Kl. 13-15 – Hönnunarteymið Þykjó leiðir smiðju, ilmandi kanilstangir og könglar mynda fallegt jólaskraut.
Jólaföndur á Bókasafni Garðabæjar
Kl. 13-15 – Búum til fallegt jólaskraut saman á safninu.
Jólaball á Garðatorgi 7
Kl. 14:20 – 15:00 – Barnakór Vídalínskirkju syngur og jólasveinar leiða söng og dans í kringum jólatréð.
Langleggur og Skjóða á Bókasafni Garðabæjar
Kl. 15 – Systkini jólasveinanna skemmta með jólasögu, söng og dansi.
Blásarasveitin við jólatréð
kl. 15:30 – Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar leikur jólasyrpu sem kemur öllum í jólaskap!