Á besta aldri í Garðabæ

Í Garðabæ hef ég bæði átt barnæsku fulla af leik og gleði og gæfurík fullorðinsár. Ég hlakka til efri áranna í bænum okkar. Síðustu ár hef ég gegnt formennsku í öldungaráði Garðabæjar og hef haft mikla ánægju af því að eiga samtal við okkar reyndustu bæjarbúa um umhverfi sitt og væntingar til bæjarins. Undanfarin ár hefur fjölgað í hópi eldri borgara í Garðabæ og hefur það endurspeglast í aukinni áherslu á málefni þess hóps.

Vinnum að heilsueflingu og nýtum vilja til vinnu

Með hækkandi lífaldri og auknu hreysti fólks á öllum aldri fjölgar tækifærum bæjarins til að þjónusta þennan íbúahóp með fjölbreyttari hætti. Hvort sem fólk óskar eftir sveigjanlegri starfslokum, aukinni áherslu á tómstundir og félagsstarf eða vill njóta þess að eiga frítíma þá á Garðabær að mæta ólíkum þörfum af opnum hug og með sveigjanleika í fyrirrúmi.

Ljóst er að áhugi er á ýmis konar heilsueflandi verkefnum fyrir þennan aldurshóp. Við höfum farið þá leið að fela félögum eldri borgara í bænum að útfæra slíkt, sem sveitarfélagið hefur síðan stutt við og útvegað aðstöðu. Það er bæjarins að styðja við kraftinn í félögunum, sem jafnan skynja betur þarfirnar.

Sístækkandi hópur fólks nálgast enda starfsferilsins en er engu að síður með mikla starfsorku. Ég tel það vera framtíðarverkefni okkar að bjóða upp á aukinn fjölda starfa fyrir þennan hóp með lágu starfshlutfalli í skóla- og tómstundastarfi bæjarins með gagnkvæmum ávinningi fyrir alla aðila.

Skipulag í þágu allra hópa – líka þeirra eldri

Vinna við skipulag nýrra svæða mun halda áfram á næsta kjörtímabili og víða er hægt að huga betur að þörfum eldri Garðbæinga. Samfélagið sem myndast hefur í kringum Strikið í Sjálandi og þjónustuna þar í kring hefur heppnast með eindæmum vel. Framundan er uppbygging nýrra hverfa í Garðabæ þar sem tilvalið er að fjölga slíkum kjörnum, þar á meðal í Vetrarmýri í námunda við Miðgarð þar sem til staðar verður aðstaða til hreyfingar og íþrótta fyrir alla aldurshópa. Þá eru víða tækifæri til að gera gott betra og mun ný félagsaðstaða fyrir eldri borgara í Breiðumýri bæta aðstöðu á Álftanesi og endurbætur á Jónshúsi munu efla það góða starf sem þegar fer fram þar.

Gleymum ekki grunnþjónustunni

Ég hef metnað fyrir því að Garðabær sé í fararbroddi varðandi alla þjónustu við eldri íbúa bæjarins. Eftir því sem þjónustuþarfir aukast skiptir samhæfing úrræða lykilmáli, hvort sem um ræðir þörf fyrir heimaþjónustu, liðveislu, dagdvöl eða hjúkrunarrými. Ekki er nóg að hægt sé að bregðast vel við afmörkuðum þörfum heldur þarf heildstæða nálgun, í samvinnu við heilsugæslu og hjúkrunarheimili, sem gerir ráð fyrir að þjónusta aukist hægt og rólega eða til að geta mætt tímabundnum aðstæðum.
Við eigum að gera vel við Garðbæinga á besta aldri.

Almar Guðmundsson, bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri, sækist eftir 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ 5. mars

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar