36 Garðbæingar á framboðslistum flokkanna

Alls eru 36 Garðbæingar á framboðslistum stjórnmálaflokkanna í Suðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar á laugardaginn, en þeir voru 41 í alþingiskosningunum árið 2017. Alls bjóða 10 flokkar fram í kjördæminu eins og í kosningunum árið 2017.

Það vekur athygli að tveir af tíu oddvitum flokkanna í SV-kjördæmi eru búsettir í öðru kjördæmi. Flestir Garðabæingar eru á lista Samfylkingar og Miðflokksins, eða 7. talsins. Aðeins 1 Garðbæingur er á lista Sósíalistaflokksins og eingöngu tveir á lista Pírata og Vinstri grænna eins og var fyrir kosningarnar 2017.

Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar búsettir í Garðabæ

Bjarni Benediktsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í SV-kjördæmi býr í Garðabæ.

Eins og áður segir eru flestir Garðbæingar framboðslista Miðflokksins og Samfylkingarinnar en fæstir á listum Sósíalistaflokks Íslands, Pírata og Vinstri grænna. Næst flestir Garðbæingar eru á lista Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar, 5 talsins, 4 Garðbæingar eru á lista Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar og 3 á listum Flokks fólksins og Frjálslynda lýðræðisflokksins.

Átta oddvitar af tíu búsettir í Kraganum

8 af 10 oddvitum flokkanna í Kraganum eru búsettir í Kraganum, en aðeins höfðu 6 af 10 oddvitum flokkana lögheimili í Kraganum í kosningunum 2017. Tveir af oddvitum flokkanna tíu fyrir kosningarnar á laugardaginn búa í Garðabæ, en það eru þeir Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki og Þórunn Sveinbjarnardóttir Samfylkingunni. Willum Þór Þórsson Framsóknarflokki er búsettur í Kópavogi, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er búsett í Hafnarfirði, Guðmundir Ingi Kristinsson í Flokki fólksins er búsettur í Kópavogi, Karl Gauti Hjaltason í Miðflokknum býr í Kópavogi, Maríu Pétursdóttur í Sósíalistaflokknum býr í Kópavogi og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Pírati býr í Mosfelssbæ.

Þórunn Sveinbjarnardóttir oddviti Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi er búsett í Garðabæ

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, auðlinda- og umhverfisráðerra og oddviti vinstri grænna í Sv-kjördæmi er með lögheimili í Reykjavík og sömu sögu er að segja um Svanhvíti Brynju Tómasdóttur í Frjálslynda lýðræðisflokknum, en hún er með lögheimili í Reykjavík.

Allir frambjóðendur Flokks fólksins, Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins búsettir í Kraganum

Af 260 frambjóðendum sem skipa framboðslistana 10 þá eru 23 af þeim með lögheimili fyrir utan Suðvesturkjördæmi. Allir frambjóðendur á lista Flokk fólksins, Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins eru búsettir í Kraganum.

6 af 26 á lista Pírata búsettir utan Suðvesturkjördæmis

Það eru 6 af 26 frambjóðendum Píratar búsettir utan Suðvesturkjördæmis, 5 úr Frjálslynda lýðræðisflokknum, 4 úr Viðreisn, 4 úr Vinstri grænum, 2 úr Sósíalistaflokki Íslands og 1 úr Miðflokknum.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar