252 íbúðir í þremur þyrpingum á Álftanesi

Föstudaginn 19. nóvember sl. var tekin skóflustunga á miðsvæði Álftaness þar sem fyrsta þyrping fjölbýlishúsa af þremur á að rísa. Undirbúningur hófst á síðasta ári þegar Garðabær, Húsbygg ehf og Íslandsbanki gerðu með sér samstarfssamning um uppbyggingu fjölbýlishúsa á miðsvæði Álftaness við Breiðumýri.

Fjölbýlishúsið sem nú rís er á lóð við Lambamýri og þar er gert ráð fyrir uppbyggingu á þjónustu og/eða verslun á jarðhæð. Einnig verður gert ráð fyrir félagsstarfssemi á fyrstu hæð hússins sem verður hægt að nýta fyrir félags- og tómstundastarf eldri borgara skv. ákvæði í samningnum um uppbygginguna.

Mikil eftirspurn hefur verið eftir húsnæði á Álftanesi og samtals verða þetta um 252 íbúðir þegar allar þrjár þyrpingarnar verða byggðar á næstu árum.

Frá skóflustungunni sl. föstudag.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins