14 ungmenni kynna verkefni sumarsins á lokasýningu

14 ungmenni hafa unnið að skapandi verkefnum í sumar og munu þau sýna afrakstur starfsins á lokasýningu þann 20. júlí næstkomandi.

Skapandi sumarstörf er öflugur angi af ungmennastarfi í Garðabæ. Fjórtán hæfileikarík ungmenni skipa 8 hópa sem fengu í sumar tækifæri til að vinna að ólíkum verkefnum sínum í tónlist, fatahönnun, ljóðlist, margmiðlun og myndlist. Hóparnir tóku þátt í Jónsmessuhátíð Grósku við Sjáland þann 23. júní og héldu ungmennin einnig einstaklingsviðburði á síðustu vikum.

Lokasýning starfsins verður haldin þann 20. júlí þar sem sýndur verður afrakstur vinnu hópanna. Sýningin er tækifæri til þess að koma saman og fagna listunum og sjá það sem listamennirnir hafa verið að vinna að í sumar. 

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar