Hvenær er sorp- eða pappírshirðing?

Á vef Garðabæjar er nú hægt að slá inn heiti á götum og sjá hvenær næsta sorp- eða pappírshirðing er í götunni. Búið er að setja upp einfalt form til að hægt sé að fletta upp og sjá næstu losun í einstaka götum. Uppflettilausnin á vef Garðabæjar var sett upp í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ sem hefur þróað uppflettilausn sorphirðu á sínum vef.

Sorphirða í Garðabæ

Sorp frá heimilum er almennt hirt á 10-12 daga fresti. Tafir geta orðið vegna veðurs eða frídaga. Hvert heimili fær eina 240 l sorptunnu en í fjölbýlishúsum er einnig möguleiki á 660 l gámum, fyrir hverjar þrjár íbúðir. Hvert heimili fær einnig eina pappírstunnu, hún er tæmd á u.þ.b. 20 daga fresti. Plast má setja í sorptunnuna (orkutunnuna) í lokuðum plastpoka. Plastpokarnir verða flokkaðir sérstaklega frá öðru rusli og þeim komið til endurvinnslu.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins