Þrjú verk fyrir píanó og fiðlu eftir John Speight frumflutt í sal Tónlistarskóla Garðabæjar

Á morgun, miðvikudaginn 12. febrúar kl. 12.15 verða þrjú verk fyrir píanó og fiðlu eftir John Speight frumflutt í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Það er píanóleikarinn Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir og fiðluleikarinn Martin Frewer sem flytja verkin. Tónleikarnir eru liður í Tónlistarnæringu sem fer fram fyrsta miðvikudag í mánuði. Aðgangur ókeypis.

John Speight starfaði sem söngvari og kennari eftir að hann fluttist til Íslands árið 1972 auk þess að vera kórstjóri Bessastaðakirkju í 15 ár. Undir lok áttunda áratugarins fór hann að semja í meira mæli svo sem fimm sinfóníur, tvær óperur, sjö einleikskonserta, jólaóratóríu, fjölda kammerverka og tæplega 100 einsöngslög. Jólaóratórían var valin tónverk ársins 2002 og diskur með píanóeinleiksverkum Johns í flutningi Peter Maté tónverk ársins 2021. John Speight hlaut árið 2023 heiðursviðurkenningu Garðabæjar fyrir ómetanlegt starf í þágu menningar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins