Stóðu sig með prýði

Upplestrarhátíð hjá 4. bekk Hofsstaðaskóla

Nemendur í 4. bekk Hofsstaðaskóla hafa undanfarnar vikur verið að æfa sig fyrir Litlu upplestrarhátíðina. Í þar síðustu viku var loksins komið að hátíðinni sjálfri og var nemendum 3. bekkjar boðið að vera viðstöddum í sal skólans þar sem hátíðin fór fram. Á hátíðinni lásu nemendur sögur, fóru með vísur og sungu. Hátíðin gekk afar vel, nemendur stóðu sig með mikilli prýði og lögðu sig fram við upplesturinn. Því miður var ekki hægt að bjóða aðstandendum til hátíðarinnar að þessu sinni en þeir munu fá að njóta upptöku af viðburðinum.

Markmiðið með Litlu upplestrarhátíðinni/keppninni er að keppa að betri árangri í lestri, þjálfa munnlega tjáningu og framkomu. Að verða betri í dag en í gær.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins