Skóp opnar nýtt frumkvöðlasetur í Kópavogi

SKÓP atvinnu- og nýsköpunarsetur í Kópavogi var opnað með pompi og prakt föstudaginn 19. mars sl., en meðal viðstaddra voru m.a. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi.

SKÓP atvinnu- og nýsköpunarsetur í Kópavogi er stofnsett og rekið af Markaðsstofu Kópavogs sem samstarfsverkefni Kópavogsbæjar og atvinnulífs bæjarins. Hugmyndin með Skóp er að styðja við einstaklinga til að koma sínum eigin viðskipthugmyndum í framkvæmd og efla þannig nýsköpun og fjölga störfum í Kópavogi.

Markmið verkefnisins er að efla enn frekar fjölbreytt atvinnulíf í bænum með sérstakri áherslu á nýsköpun og frumkvöðlastarf. Hugmyndin er að veita Kópavogsbúum aðstoð við að fullmóta viðskiptahugmyndir sínar og verður sérstaklega horft til þeirra einstaklinga sem eru í atvinnuleit og vilja skapa sér sín eigin atvinnutækifæri.

Á myndinni er klippt á boða til marks um formlega opnun atvinnu- og nýsköpunarsetursins SKÓP. F.v. Guðmundur Sigurbergsson forstöðumaður SKÓP, Helga Hauksdóttir og er formaður stjórnar Markaðsstofu Kópavogs, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi

Unnið verður með þátttakendum á einstaklingsgrunni við að rýna viðskiptahugmyndina, greina þá þætti sem skipta mestu máli til að hrinda henni í framkvæmd og setja hugmyndina fram með skipulegum hætti í heildstæðri viðskiptaáætlun. Reiknað er með að ferlið frá hugmynd að viðskiptaáætlun geti tekið 3-6 mánuði en það er þó einstaklingsbundið og ræðst m.a. af eðli og umfangi viðskiptahugmyndarinnar.

Helstu skilyrði fyrir þáttöku eru að viðkomandi sé lögráða og eigi lögheimili í Kópavogi. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á vefsetri atvinnu- og nýsköpunnarsetursins www.skop.is Þar geta áhugasamir skráð sig til þáttöku og pantað viðtal við ráðgjafa.

Atvinnu- og nýsköpunarsetrið verður með aðstöðu í húsnæði NTV í Hlíðarsmára 9 í Kópavogi. Þar er í boði fundaaðstaða og aðgangur að tölvuveri fyrir þá sem á því þurfa að halda.

Ármann Kr. Ólafsson bæjar-stjóri fagnaði opnun setursins og segist binda miklar væntingar til starfsins.

Frekari upplýsingar veita Guðmundur Sigurbergsson forstöðumaður SKÓP í sima 861 5757 og Björn Jónsson framkvæmdastjóri Markaðsstofu Kópavogs í síma 864 8830.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar