Nettó styrkir góð málefni og óskar eftir tillögum frá viðskiptavinum í gegnum netto.is

Nettó hefur ýtt úr vör verkefninu Notum netið til góðra verka og óskar eftir tillögum frá viðskipta-vinum um hvaða góðgerðarsamtök eigi að styðja. Verkefnið felur í sér að 200 krónur af hverri sendingu úr netverslun Nettó mun renna til góðra málefna. Netverslun Nettó er stærsta netverslun landsins og gæti upphæðin því hlaupið á nokkrum milljónum króna.

2000 tillögur bárust í fyrra

Nettó stóð fyrir samskonar styrktarátaki í fyrra sem féll í góðan jarðveg og bárust þá yfir 2.000 tillögur og ábendingar um góð málefni til að styrkja í gegnum vefsíðuna www.netto.is
,,Í ár verður sami hátturinn hafður á þannig að við tökum saman ábendingar um málefni og sjáum hvar þörfin er mest og hvaða málefni eiga best við samfélagsstefnu okkar. Okkar von er að sem flestar ábendingar berist því þetta er hvorki fyrsta né síðasta verkefnið af þessu tagi sem Nettó ræðst í,“ segir Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir markaðsstjóri Samkaupa/Nettó.

Í byrjun desember verður síðan söfnunarfé átaksins veitt fulltrúum þeirra samtaka sem hljóta munu styrk. Nettó hefur undanfarin ár verið fastur styrktaraðili Hjálparstarfs kirkjunnar, Fjöl-skylduhjálpar Íslands og Mæðrastyrksnefndar.

Styrktarátk út nóvember

Styrktarátakið stendur út nóvember og geta viðskiptavinir komið ábendingum áfram um málefni eða góðgerðasamtök á heimasíðu Nettó, netto.is.

Nettó rekur 19 verslanir um land allt og var Nettó fyrsta lágvöruverslunin til að opna netverslun fyrir matvörur á Íslandi í september 2017 og er sama verð netversluninni og í verslunum Nettó.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins