Íbúafundur í Urriðaholti klukkan 19:30 í kvöld

Í kvöld mun Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar ásamt sviðsstjórum bjóða áhugasömum íbúum til samtals og sitja fyrir svörum á íbúafundi í Urriðaholti, en fundurinn er haldinn í Urriðaholtsskóla og hefst klukkan 19:30.

Fundurinn er haldinn undir yfirskriftinni „Hvað er að frétta í Garðabæ“ og hafa nú þegar tveir fundir verið haldnir undir sömu yfirskrift í október, einn á Álftanesi og annar í Flataskóla.

Á fundinum í kvöld fá íbúar tækifæri til að fara yfir það sem þeim liggur á hjarta, taka til máls og bera fram fyrirspurnir.

Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar. Öll velkomin og hlökkum til samtalsins.

Forsíðumynd: Almar fundaði með bæjarbúum í Flataskóla sl. mánudag, en lokafundurinn af þremur er í kvöld í Urriðaholtsskóla.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins