Hátíðarlambalæri með villisveppasósu

Páskarnir eru á næsta leiti og við fengum Jón Örn Stefánsson, matreiðslumeistara og eiganda Kjötkompaní í Dalshrauni Hafnarfirði til að koma með klassíska páskauppskrift fyrir lesendur og varð hátíðarlambalæri fyrir valinu ásamt villisveppasósu.

Hátíðar lambalæri

Eldunarleiðbeiningar:
Hitið ofninn í 170 gráður, komð kjarnhitamæli fyrir í lærinu og setið lærið í ofninn, eldunartíminn er ca 90 mínútur en best er að fylgjast með kjrnhitamæli og stoppa eldun í 66 gráðum í kjarna. Látið svo lærið hvíla í ca 10 mínútur.

Tillgaga að meðlæti er villisveppasósa, ofnbakaðar kartöflur og ferskt grænmeti.

Villisveppasósa
Hráefni:
20 gr villisveppir þurrkaðir 350 ml nautasoð
500 ml Rjómi
30 gr smjör
Ferskt timjan (bara lítið)
1 stk laukur saxaður Sjávarsalt og nýmalaður pipar Nautakjötkraftur

Aðferð:
Sveppirnir eru settir í skál og heitu nautasoði hellt yfir, látið vera í heitu soðinu í ca hálftíma, síðan er soðinu hellt af sveppunum og soðið er geymt en sveppirnir eru saxaðir gróft. Smjörið er hitað á pönnu, laukurinn settur á pönnuna og látinn krauma í ca 3-4 mínútur, sveppunum bætt samanvið ásamt soðinu, kryddað með sjávarsalti, ferku timjan, nýmöluðum pipar og smá kjötkrafti síðan er rjómanum bætt samanvið og látið sjóða í ca 10-15 mínútur.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins