20.000 gestir á Bókasafni Kópavogs í október

Bókasafn Kópavogs sló aðsóknarmet í október þegar samtals yfir 20.000 gestir komu í bæði útibú þess, aðalsafn og Lindasafn þann mánuð. Aldrei hafa fleiri gestir sótt safnið í einum mánuði frá opnun árið 1953.

,,Það er sérstaklega gaman að sjá svona tölur þar sem ráðist var í miklar breytingar á barnadeild aðalsafns í byrjun þessa árs og ný og endurbætt deild opnuð á jarðhæð ásamt Náttúrufræðistofu Kópavogs og alltaf óvissa með viðtökur á svona breytingum,“ segir Lísa Z. Valdimarsdóttir forstöðumaður Bókasafns Kópavogs.

Viðburðahald í báðum útibúum hefur verið fjölbreytt og vel sótt undanfarið og margir vikulegir og mánaðarlegir viðburðir hafa skipað sér fastan sess hjá gestum. Á dögunum hlaut safnið Nordplus styrk fyrir verkefnum tengdum fjölmenningu og hefur áherslan í viðburðahaldi verið fjölbreyttari en áður og reynt hefur verið að koma til móts við þarfir allra.

,,Það er líklegast og vonandi að skila sér í fleiri gestum á safnið og er það mjög ánægjulegt,“ bætir Lísa við og segir að lokum að mikilvægt sé að allir bæjarbúar upplifi sig velkomna á safnið burtséð frá kyni, þjóðerni, stétt eða stöðu. „Hér eru öll velkomin“.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins