Soroptimistar um allan heim munu í ár. eins og mörg undanfarin ár, slást í för með um 6000 samtökum í 187 löndum sem leidd eru af Sameinuðu þjóðunum til að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi gegn stúlkum og konum með þátttöku í 16 daga átakinu #roðagyllumheiminn, #orangetheworld.
Roðagyllti liturinn sem er litur átaksins táknar bjartari framtíð án ofbeldis gegn konum og stúlkum.
Átakið sem nú fer fram í þrítugasta sinn hefst þann 25. nóvember á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gagnvart konum og stúlkum og því lýkur þann 10. desember á hinum alþjóðlega mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna sem jafnframt er dagur Soroptimista. Markmið 16 daga átaksins er að beina athyglinni að alvarleika kynbundins ofbeldis, fræða almenning og hvetja til að ofbeldið verði stöðvað. Til þess þarf vitundarvakningu.
Ein af hverjum þremur konum hafa verið beittar ofbeldi á lífsleiðinni og er það eitt útbreiddasta mannréttindabrot í heimi. Nærri 140 konur eru myrtar á hverjum degi af nánum fjölskyldumeðlimi. Um 15 milljónir núlifandi unglingsstúlkna, 15-19 ára, hafa verið beittar kynferðislegu ofbeldi. Konur eru 72% allra þeirra í heiminum sem hneppt eru í mansal og kynlífsþrælkun. 200 milljónir núlifandi stúlkna og kvenna hafa verið limlestar á kynfærum. Á hverri mínútu eru 23 barnungar stúlkur þvingaðar í hjónaband.
Sú hefð hefur skapast að ákveðið málefni verður i í brennidepli ár hvert. Áhersla íslenskra Soroptimista mun að þessu sinni beinast að stafrænu ofbeldi. Stafrænt ofbeldi fer fram gegnum tæki og tækni, svo sem síma, tölvu og samfélagsmiðla. Notkun á samfélagsmiðlum hefur aukist mikið undanfarin ár og sífellt fleiri konur og stúlkur eru áreittar, beittar ofbeldi, ofsóttar, niðurlægðar eða þeim ógnað gegnum þá.
Með auknu aðgengi að stafrænum miðlum og útbreiðslu þeirra varð til ný og oft dulin nálgun á ofbeldi gegn konum og stúlkum þar sem oft er erfitt að rekja ofbeldið, verja sig gegn því og uppræta það. Það getur verið texti eða mynd með skilaboðum eða tölvupósti. Það er líka stafrænt ofbeldi ef einhver er að fylgjast með hvað þú gerir í símanum þínum og hvað þú gerir á netinu.
Fólk sem verður fyrir stafrænu ofbeldi upplifir oft ótta, reiði, kvíða, þunglyndi og að vera ekki við stjórn á eigin lífi. Fólki finnst það ekki eiga neitt einkalíf, er líklegt til að einangra sig og upplifir hjálparleysi.Tíunda hver kona hafði orðið fyrir stafrænu ofbeldi fyrir heimsfaraldur Covid-19 en nú hefur fjöldinn aukist mikið.
Ýmislegt verður gert þessa 16 daga til að beina athygli að stafrænu ofbeldi. Íslenskir Soroptimistar, sem nú eru um 600 talsins í 19 klúbbum um allt land, munu vera sýnilegir meðal annars með því að klæðast roðagylltum lit, skrifa greinar í blöð og lýsa upp byggingar í sinni heimabyggð í roðagylltum lit.
Til að vekja athygli á átakinu hefur Soroptimistaklúbbur Kópavogs leitað til ýmissa aðila um að lýstar verði upp byggingar í Kópavogi með appelsínugulum lit átaksins.
Hefur verið tekið vel í þá beiðni um munu t.a.m Digraneskirkja, Hjallakirkja, Lindakirkja og Smáralind verða af þessu tilefni baðaðar appelsínurauðum lit einhverja daga á tímabilinu.
Við hvetjum alla til að roðagylla heiminn og segja Nei við kynbundnu ofbeldi.
Þóra Guðnadóttir
Formaður Soroptimistaklúbbs Kópavogs.