Öll á sömu línunni?

Sveitarfélögin á höfuðborgar-svæðinu hafa gert með sér viðamikinn sáttmála um skipulagsmál sem er samofin við eina umfangsmestu innviðauppbyggingu almenningssamgangna sem sést hefur og felst í tilkomu Borgarlínu. Hvernig sveitarfélögin skipuleggja umhverfi sitt er mjög stórt samfélagsmál, því skipulagsmálin stýra því hvernig umhverfið birtist okkur og hverjum það er ætlað.

Í því ljósi var áhugavert að verða vitni að vinnubrögðum Sjálfstæðismanna í Garðabæ á bæjarráðsfundi sl. þriðjudag.

Þar sem hjartað raunverulega slær

Höfuðborgarsvæðið allt hefur sett sér stefnu í svæðisskipulagi um uppbyggingu hverfa sem byggir á þéttingu byggðar til stuðnings Borgarlínu. Á sama tíma velja Sjálfstæðismenn í Garðabæ að setja allt kapp á að koma lóðum í sölu á nýju svæði sem rúma allt að 30 einbýlishús. Svæði sem í dag hefur engar tengingar við önnur hverfi.

Það er mikilvægt að Garðabær bjóði upp á fjölbreytt búsetuform og næg einbýli fyrir fólk sem hingað vill koma. En að forgangsraða uppbyggingu hverfis sem telur að hámarki 30 einbýlishús er í hrópandi ósamræmi við það svæðisskipulag sem gildir samkomulag um á milli sveitarfélaganna. Garðbæingar hljóta að spyrja sig hvort þetta sé í takt við sameiginlega sýn höfuðborgarsvæðisins um þéttingu byggðar og samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins? Er það skynsamlegt að fara í innviðaupp-byggingu fyrir svo lítið hverfi? Er það besta nýtingin á þessu svæði að það nýtist helst fáum fjölskyldum?

Skipulagið sem nefnt er Garðahverfi, er frá árinu 2013. Á landsvæði þar sem mikið af

fornminjum má finna, auk þess sem náttúrufegurðin er óviðjafnanleg. Svæði sem ætti að nýtast sem flestum og helst sem náttúruparadís. En meðal meirihlutans þykir engin ástæða til að endurskoða tæplega 10 ára gamalt skipulag í takt við ákall tímans og þeirrar þróunar sem verið hefur.

Lýðræðislegu vinnubrögð meirihlutans í hnotskurn

Sama dag og klukkutíma kynn-ing á skipulagi Garðahverfis fór fram í bæjarráði, þessum útúrdúr úr skipulagi Garðabæjar, barst bæjarfulltrúum tillaga um að fela umhverfis- og tæknisviði að hefja skipulagsvinnu á rammahluta aðalskipulags á þróunarsvæði A, Lyngás, Miðbær og yfir Hafnarfjarðarveg. Brýnt verkefni, sem byggir á verðlaunatillögu frá árinu 2016. Á þessu svæði verður stoppistöð Borgarlínu og tengingar við Strætó. Eins og fram kemur í greinargerðinni skiptir máli að hafa á svæðinu fjölbreytta starfsemi og fjölbreytt íbúðahúsnæði, gott aðgengi fyrir fjöl-breytta ferðamáta og góð almenningsrými.

Skipulag miðkjarna Garðabæjar mun skipta alla bæjarbúa miklu að heppnist vel og því hefði tímanum í bæjarráði óhjákvæmilega verið betur varið í kynningu á þessu verkefni, sem raunverulega er framundan, fremur en þessu hliðarverkefni sem bæjarstjóranum virðist meira annt um.

Tillaga hefur nú verið lögð fram um að hefja undirbúning fyrir þessar viðamiklu framkvæmdir án þess að nokkur kynning á gögnum hafi átt sér stað né heldur liggi fyrir upplýsingar um hvaða gögn eru til. Engar upplýsingar um ábatamat eða hvort það hafi verið gert.

,,Ég lif’ í voninni”

Ég vissulega bjó með þá von í brjósti að meirihlutinn tæki við sér og sæi ljósið um hversu mikilvægt það er að ræða þróun og skipulag Garðabæjar í ljósi samkomulags um svæðisskipulag og borgarlínu. Umræðan á síðasta bæjarstjórnarfundi gaf það reyndar ekkert sérstaklega til kynna, þegar ég hóf umræðu um borgarlínu og það mikilvæga hlutverk sem sveitarfélögin gegna til að leysa það verkefni farsællega. Ég mátti því með nokkurri vissu frekar eiga von á hinum þekktu ólýðræðislegu vinnubrögðum meirihlutans í Garðabæ og hvernig þeir fara með skattfé íbúanna.

Sara Dögg Svanhildardóttir
Oddviti Garðabæjarlistans í Garðabæ.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar