Hundabann við Vífilsstaðavatn og Urriðavatn

Eins og undanfarin ár er hundum bannaður aðgangur í friðlandi Vífilsstaðavatns og við Urriðavatn yfir varptímann, tímabilið 15. apríl – 15.ágúst.

Hundum er bannaður aðgangur til þess að friðhelgi fugla við Vífilsstaðavatn verði tryggt allan varp- og ungatímann, samþykkti bæjarráð Garðabæjar fyrir áramót tillögu umhverfisnefndar um lengingu á hundabanni á varptíma við Vífilsstaðavatn og gildir það sama um Urriðavatn. Hundaeig-endur, veiðimenn og útivistarfólk er vinsamlegast beðið um að vernda fuglalífið í friðlandi Vífilsstaðavatns, virða friðhelgi fugla um varptímann, ganga vel og snyrtilega um svæðið og virða.

Óheimilt er að veiða á merktu svæði norðanmegin í vatninu vegna verndunar varpsvæða flórgoðans og öll umferð báta og kajaka er bönnuð á vatninu.

Hundar þurfa ávallt að vera í bandi

Sérstakt lausagöngu- og útivistarsvæði er fyrir hunda á Bala í Garðahverfi (sjá rauðn punkt á mynd)

Á meðan hundabann er í gildi við vötnin er hundaeigendum bent á að þeir geta farið með hunda sína í göngu t.d. við skógræktarsvæðið í Smalaholti og Sandahlíð. Hundar eiga ávallt að vera í bandi og taka þarf tillit til annars útivistarfólks og dýralífs á svæðunum.

Að gefnu tilefni má minna á sérstakt lausagöngu- og útivistarsvæði fyrir hunda á Bala í Garðahverfi. Hundaeigendur eru minntir á að hirða upp eftir hunda sína og skila úrganginum í næstu ruslatunnu.
Nánari upplýsingar um gönguleiðir má finna á vef Garðabæjar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins